Gullver NS við bryggju á Seyðisfirði nýkominn úr slipp. Ljósm. Ómar Bogason

Ísfisktogarinn Gullver NS kom nýlega til heimahafnar á Seyðisfirði eftir að hafa verið í slipp á Akureyri um tíma. Gert er ráð fyrir að skipið haldi til veiða síðdegis í dag og ræddi heimasíðan stuttlega við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra. „Við reiknum með að fara út seinni partinn. Það þarf að ná í fisk fyrir vinnsluna og því verður þetta afar stuttur túr. Áformað er að við komum inn á mánudagsmorgun. Við förum líklega út á Gletting. Það má gera ráð fyrir að þar liggi fiskurinn í síldinni,“ segir Hjálmar Ólafur.

Rýmingu var aflétt á Seyðisfirði í gær en vegna brælunnar að undanförnu fæst ekki fiskur til vinnslu í frystihúsinu fyrr en Gullver landar á mánudag.