Gullver NS í höfn á Seyðisfirði. Nú er skipið komið í hálfs mánaðar stopp.
Ljósm. Ómar Bogason

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði í gær að aflokinni veiðiferð. Aflinn var 106 tonn og blandaður en mest var af ýsu og karfa. Nú er Gullver kominn í hálfs mánaðar stopp en hann heldur ekki á ný til veiða fyrr en 9. ágúst. Í stoppinu verður dyttað að ýmsu í skipinu en það mun síðan fara í slipp í lok ágústmánaðar. Vinnsla í frystihúsi Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði hefur legið niðri frá því í byrjun þessa mánaðar og hefst ekki á ný fyrr en 14. ágúst. Starfsfólk hússins hefur því fengið ágætt sumarfrí.

Þórhallur Jónsson, skipstjóri á Gullver, segir að síðasti túr skipsins hafi gengið vel að því undanskildu að erfitt hafi verið að ná karfanum. „Við veiddum allvíða og vorum í Hornafjarðardýpinu, Berufjarðarálnum, á Papagrunni og Stokksnesgrunni og almennt fiskaðist vel. Það var hins vegar ströggl að fá karfa, hvorki gullkarfi né djúpkarfi virðist halda sig í miklum mæli hér austurfrá,“ segir Þórhallur.