Gullver NS að landa. Ljósm. Ómar Bogason

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði í morgun með tæplega 96 tonn. Aflinn er mestmegnis þorskur og ufsi. Landað verður úr skipinu í dag og það mun síðan halda til veiða á ný í kvöld. Heimasíðan ræddi stuttlega við Rúnar L. Gunnarsson skipstjóra og spurði fyrst hvernig túrinn hefði gengið. „Hann gekk svona þokkalega en við vorum fimm daga að veiðum. Við hófum veiðar á Öræfagrunni og enduðum á Glettinganesflakinu. Mér finnst vanta dálítinn kraft í þorskinn, það hefði mátt ganga betur að eiga við hann. Það liggur fyrir að loðna er komin hér fyrir austan land því það er talsvert af henni í fiskinum,“ segir Rúnar.

Að sögn Ómars Bogasonar hjá frystihúsinu á Seyðisfirði fer vinnslan þar vel af stað og enginn skortur á hráefni. Segir hann mjög mikilvægt að fyrirtækin á Seyðisfirði séu farin að starfa eftir skriðuföllin og lífið á staðnum sé óðum að nálgast eðlilegt horf.