Gullver NS við bryggju framan við frystihúsið á Seyðisfirði. Ljósm. Þorgeir BaldurssonGullver NS við bryggju framan við frystihúsið á Seyðisfirði.
Ljósm. Þorgeir Baldursson
Í dag er verið að landa fullfermi úr ísfisktogaranum Gullver NS á Seyðisfirði. Afli skipsins er 102 tonn og er hann blandaður; þorskur, ýsa, ufsi og karfi. Rúnar L. Gunnarsson skipstjóri segir að vel hafi gengið að fiska í veiðiferðinni. „Það aflaðist ágætlega en túrinn var fjórir dagar höfn í höfn. Við vorum mest í Berufjarðarál, Lónsdýpi og á Papagrunni en enduðum á Herðablaðinu í þorski. Þetta er annar túrinn eftir að skipið kom úr slipp og það hefur bara gengið vel í þeim. Við getum varla kvartað,“ segir Rúnar.
 
Gert er ráð fyrir að Gullver haldi á ný til veiða annað kvöld.
 
Frystihúsið á Seyðisfirði hefur verið lokað að undanförnu vegna sumarleyfa starfsfólks en vinnsla mun hefjast þar á ný eftir verslunarmannahelgi. Vinnsluhléið hefur verið notað til að setja upp tvo nýja frystiskápa þannig að frystigeta hússins mun aukast verulega.