Í gær var landað úr ísfisktogaranum Gullver NS á Seyðisfirði. Skipið kom til hafnar aðfaranótt laugardags en vegna páskahátíðarinnar var beðið með löndunina. Skipstjóri í veiðiferðinni var Þórhallur Jónsson og segir hann að hún hafi gengið vel. „Aflinn var um 116 tonn og fékkst hann á fjórum sólarhringum eða svo. Uppistaða aflans var þorskur. Við vorum að veiðum í Hvalbakshallinu í ágætis veðri og vorum komnir til hafnar fyrir páskahretið,“ segir Þórhallur. 

Gullver NS kemur til hafnar. Ljósm. Ómar Bogason

Gullver hélt til veiða á ný í gærkvöldi.