Gullver NS landaði fullfermi. Ljósm. Ómar Bogason

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði aðfaranótt sunnudags með fullfermi eða um 120 tonn. Þórhallur Jónsson skipstjóri segir að uppistaða aflans hafi verið þorskur og ýsa en einnig hafi karfi og ufsi verið í aflanum. „Við fórum út á mánudagskvöld og komum inn aðfaranótt sunnudagsins. Við vorum að veiðum frá Hvalbakshalli og vestur á Mýragrunn. Það gekk vel að fiska þorsk og ýsu en okkur gekk heldur erfiðlega að finna ufsa og karfa að einhverju ráði. Það var fínasta veður lengst af í túrnum,“ segir Þórhallur.

Gullver mun halda á ný til veiða í kvöld.