Gullver NS. Ljósm. Þorgeir Baldursson

Ísfisktogarinn Gullver kom til heimahafnar á Seyðisfirði í gær með fullfermi eða 119 tonn. Landað verður úr skipinu í dag. Heimasíðan ræddi stuttlega við Steinþór Hálfdanarson skipstjóra og spurði um veiðiferðina. „Við vorum fjóra daga að veiðum í blíðuveðri. Veitt var á okkar hefðbundnu slóðum í Berufjarðarál og í Hvalbakshallinu og síðan kíktum við í Lónsdýpið. Aflinn var mjög blandaður en mest þorskur. Nú er stærri fiskur farinn að sjást á þessum miðum eins og gerist á hverju vori. Við lögðum dálitla áherslu á að ná í karfa. Það hefur ekki verið mikill karfi fyrir austan en nú urðum við ágætlega varir við hann og fengum rúmlega 20 tonn,“ segir Steinþór.

Gullver heldur til veiða á ný í kvöld.