Börkur NK og Barði NK í Norðfjarðarhöfn í morgun, tilbúnir að halda til kolmunnaveiða. Ljósm. Smári Geirsson

Í morgun létu Síldarvinnsluskipin Barði NK, Beitir NK og Börkur NK úr höfn í Neskaupstað og héldu til kolmunnaveiða. Heimasíðan ræddi við Hálfdan Hálfdanarson skipstjóra á Berki og spurði hvort mönnum litist ekki vel á veiðarnar. “Jú, mönnum list bara vel á. Veiði var að hefjast á gráa svæðinu syðst í færeysku lögsögunni og færeysk og íslensk skip fengu þar góðan afla í gær. Nú er bara að vona að veður haldist gott og þá ætti að fiskast vel þarna. Við hófum veiðar á þessum slóðum sjöunda eða áttunda apríl í fyrra og það fiskaðist strax vel,” segir Hálfdan.

Fiskimjölsverksmiðjurnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði eru tilbúnar að taka á móti afla til vinnslu. Síldarvinnslan á eftir að veiða um 61.000 tonn af kolmunna þannig að það eru næg verkefni framundan.