
Fyrirtækið er einnig að gera fleira til að stuðla að heilsueflingu starfsmanna, því nýlega var farið að bjóða upp á svokallaða samgöngusamninga fyrir þá sem vilja auka hreyfingu með því að ganga eða hjóla til og frá vinnu á tímabilinu fyrsta maí og út október. Greiðsla fyrir hreyfinguna nemur 5000 kr. á mánuði og er skattfrjáls. Þessir samningar eru líka jákvæðir fyrir umhverfið, þar sem fólk ferðast með vöðvaafli í stað þess að nota farartæki sem brenna kolefni. „Viðbrögðin hafa verið mjög jákvæð og við höfum þegar gert talsvert marga samninga, þrátt fyrir rysjótt tíðarfar. Fólk þarf auðvitað að fara mislangt í vinnuna, en þeir sem þurfa að hjóla eða ganga lengst fá auðvitað mest út úr þessu. Við lítum á þetta sem mjög jákvæða viðbót við líkamsræktarstyrkinn sem við bjóðum upp á, en hann nemur 20.000 krónum á ári“, segir Hákon stafsmannastjóri. Á næstu vikum verður framkvæmd könnun meðal starfsmanna til að kanna viðhorf starfsmanna til hreyfingar og hreyfistyrkja, en könnunin er liður í meistaraverkefni Guðrúnar Júlíu Jóhannsdóttur í íþróttafræði við Copenhagen University. Starfsmenn eru eindregið hvattir til að taka þátt í könnuninni, sem verður kynnt nánar fljótlega.
Að lokum má nefna að Síldarvinnslan er einnig að efla heilbrigðisþjónustu og ráðgjöf fyrir stafsmenn. Samið hefur verið við fyrirtækið Sjómannaheilsu um að taka við allri veikindaskráningu og ráðgjöf fyrir starfsmenn, en fyrirtækið hefur sérhæft sig í að þjónusta sjávarúvegsfyrirtæki. Stofnandi fyrirtækisins, Guðni Arinbjarnar, er sérfræðingur í bæklunarskurðlækningum, en einnig viðurkenndur sjómannalæknir á Íslandi og í Noregi. Hann er því afar vel að sér í því hvernig á að fyrirbyggja og meðhöndla stoðkerfisvandamál, bæði hjá sjómönnum og starfsmönnum í landi. „Við töldum mikilvægt að bæta þjónustu á þessu sviði, enda ömurlegt þegar fólk verður óvinnufært vegna stoðkerfisvandamála sem hægt hefði verið að fyrirbyggja eða leysa með því að hjálpa fólki áður en vandamálin verða krónísk. Það er stundum sagt að sá sem er heilbrigður eigi sér margar óskir, en sá sem er veikur eigi sér bara eina ósk. Við viljum að okkar starfsmenn eigi sér margar óskir“, segir Hákon að lokum. Þjónusta Sjómannaheilsu verður kynnt nánar á næstu vikum, en Guðni mun þá koma í heimsókn og hitta starfsfólk.
