Vinnsla á loðnuhrognum er hafin hjá Síldarvinnslunni. Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson

Vinnsla á loðnuhrognum hófst hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað á laugardaginn þegar Vilhelm þorsteinsson EA kom með tæplega 3.000 tonn. Mikið magn af hrognum kom úr farminum. Síðan var byrjað að vinna hrogn úr farmi Bjarna Ólafssonar AK í morgun en hann kom til hafnar í gær með rúmlega 1.600 tonn. Mokveiði hefur verið á miðunum fyrir vestan land og er Börkur NK á leiðinni til Neskaupstaðar með um 3.000 tonn þannig að hrognavinnslan heldur áfram af fullum krafti.

Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, segir að hrognavinnslan gangi vel. „Það er rífandi gangur í þessu. Afköstin í kreistingunni eru mjög góð og hér er verið að fínstilla pökkunina og frystinguna. Hrognin líta vel út og þroskinn er 80 – 90 %. Farmarnir sem við erum að fá eru stórir þannig að það reynir verulega á allt kerfið hjá okkur,“ segir Geir Sigurpáll.

Það skiptir miklu máli að hrognavinnslan gangi vel því loðnuhrognin eru verðmætasta afurð loðnuvertíðarinnar.