Gullver NS. Ljósm. Þorgeir BaldurssonGullver NS. Ljósm. Þorgeir BaldurssonÍsfisktogarinn Gullver NS landaði á Seyðisfirði í gær og hélt til veiða strax að löndun lokinni. Heimasíðan ræddi við Þórhall Jónsson skipstjóra í hádeginu í dag. „Það er ekkert sérstaklega gott af okkur að frétta. Við erum nú í skítabrælu í Hvalbakshallinu með trollið inni á dekki. Við náðum bara tveimur holum áður en veðrið skall á. Það hafa verið hérna einir 20-30 metrar og haugasjór þannig að það er ekki mögulegt að veiða, en það á víst að lægja þegar líður á daginn. Við lönduðum í gær einum 112 tonnum af blönduðum afla, en mest var af ýsu og þorski. Túrinn gekk afar vel, við byrjuðum í Lónsbugtunni, vorum síðan ofarlega í Berufjarðarál og enduðum í Lónsdýpinu. Túrinn tók bara fjóra sólarhringa. Að lokinni löndun var strax haldið til veiða á ný og er ráðgert að við komum til löndunar á fimmtudag eða föstudag. Áhrifa kórónuveirufaraldursins virðist gæta minna en áður og því eru engin rólegheit lengur,“ segir Þórhallur.