Tveir af þeim tíu Japönum sem nú dvelja í Neskaupstað og fylgjast með loðnufrystingu.  Takahashi til vinstri og Kusayanagi til hægri.

Japansfrysting er hafin í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað þar sem hrognafylling loðnunnar er orðin 16% en að undanförnu hefur verið framleitt á Austur-Evrópu og svonefnt „Japansmix“

Frysting í fiskiðjuverinu hefur gengið afar vel það sem af er loðnuvertíðinni og hefur vinnslan verið nær samfelld.

Hvorki fleiri né færri en tíu fulltrúar japanskra kaupenda eru í Neskaupstað um þessar mundir og fylgjast grannt með vinnslustarfseminni og því hráefni sem berst að landi.