Frá jólaballi Síldarvinnslunnar. Ljósm. Hákon ErnusonFrá jólaballi Síldarvinnslunnar. Ljósm. Hákon ErnusonHið árlega jólaball Síldarvinnslunnar verður haldið í Nesskóla í Neskaupstað föstudaginn 28. desember kl. 16.00. Eins og hefð er fyrir verður ballið haldið í samvinnu við 9. bekk Nesskóla. Öllum börnum og foreldrum er boðið á ballið og er aðgangur ókeypis. Dansað verður í kringum jólatré við undirleik og söng og auðvitað munu jólasveinar koma í heimsókn. Jólaballið er fyrir mörg börn fastur liður í jólahaldinu og skemmta þau sér gjarnan konunglega.