Hið árlega jólaball Síldarvinnslunnar verður haldið í Egilsbúð í Neskaupstað 28. desember kl. 16.00. Ballið er haldið í samvinnu við 9. bekk Nesskóla. Öllum börnum og foreldrum er boðið á ballið og er aðgangur ókeypis. Samkvæmt venju verður dansað í kringum jólatré við undirleik og söng og jólasveinar munu koma í heimsókn. Fyrir mörg börn er jólaballið fastur liður í jólahaldinu og skemmta þau sér yfirleitt konunglega á samkomunni.