JólaballSíldarvinnslan hf. og 9. bekkur Nesskóla halda jólaball í Egilsbúð þann 28. desember kl. 17:00.  Dansað verður í kringum jólatréð og jólasveinar kíkja í heimsókn með eitthvað gott í poka.  Kaffi verður á könnunni fyrir fullorðnafólkið og djús fyrir krakkana.

Aðgangur er ókeypis.

Góða skemmtun

Síldarvinnslan og 9. bekkur Nesskóla.