Jólasíldin sett í fötur í fiksiðjuverinu. Ljósm. Smári Geirsson
Síldin komin í föturnar. Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson

Að undanförnu hefur verið unnið að því í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað að setja jólasíld fyrirtækisins í fötur. Það eru margir sem bíða spenntir eftir síldinni og telja hana ómissandi hluta jólahátíðarinnar. Síldarvinnslusíldin þykir sú besta og fá allir, sem starfa hjá fyrirtækinu eða tengjast því, vatn í munninn þegar á hana er minnst. Síldin er framleidd eftir kúnstarinnar reglum og er farið eftir uppskrift sem hefur verið þróuð í áratugi. Framleiðsluferillinn er ekki gefinn nákvæmlega upp en unnt er að greina frá ýmsum þáttum hans. Í fyrsta lagi er notuð norsk-íslensk gæðasíld til framleiðslunnar og er hún flökuð og skorin í bita nýveidd. Í öðru lagi þarf að láta bitana liggja í saltpækli í ákveðinn tíma og síðan í pækli með tilteknu magni af ediksýru. Í þriðja lagi er síldin sett í fötur og fara ýmsar kryddjurtir með í föturnar sem sjá um að framkalla hið himneska bragð.

Með síldinni fara ýmsar kryddjurtir í föturnar.
Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson

Það er ávallt ákveðin stemmning hjá starfsfólki fiskiðjuversins þegar unnið er við jólasíldina og oft spyr fólk, sem getur vart beðið eftir hnossgætinu, um framleiðsluna. Ár eftir ár heyrist að síldin hafi aldrei verið betri og sýnir það að ávallt er verið að fullkomna framleiðsluna og gera hana ómótstæðilegri. Heyrst hefur að í ár sé jólasíldin einstakt ljúfmeti og er hún í reynd lokaþátturinn á afar vel heppnaðri síldarvertíð.

Fyrir utan þá jólasíld sem fer til Síldarvinnslufólks fær líknarfélagið Hosurnar ákveðið magn sem það selur, en Hosurnar er líknarfélag starfsmanna Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað. Hosurnar selja síld á markaði í Safnahúsinu í Neskaupstað í dag (föstudag) kl. 16 -21 og á morgun (laugardag) kl. 13 -16. Annars geta þeir sem hafa áhuga á að kaupa síld af Hosunum haft samband við .

Jólasíldin tilbúin. Ljósm. Smári Geirsson