Það fer ýmislegt í föturnar með síldinni til að fá hið eina sanna bragð. Ljósm. Smári Geirsson
Jólasíldin sett í fötur. Ljósm. Smári Geirsson

Það var ánægjulegt að koma í fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað í morgun. Þá var hópur starfsmanna að setja jólasíldina í fötur undir glymjandi jólatónlist. Fyrir starfsmenn Síldarvinnslunnar og þá sem tengjast fyrirtækinu er jólasíldin ómissandi hluti hverrar jólahátíðar og til eru þeir sem segja að eitt helsta tilhlökkunarefni ársins sé að fá að bragða á þessari eðalsíld. Síldin er framleidd eftir ströngum reglum og er það Jón Gunnar Sigurjónsson yfirverkstjóri sem stýrir framleiðslunni. Ekki er hægt að segja að Jón Gunnar sé reynslulítill í þessum efnum því hann hefur komið að framleiðslu jólasíldar í ein 35 ár. Fyrir síðustu jól var starfsmönnum Karstensens skipasmíðastöðvarinnar í Skagen í Danmörku send jólasíld frá Síldarvinnslunni en þeir unnu þá að smíði Barkar NK. Eins og allir vita eru Danir þekktir fyrir sína síldarneyslu og fékk jólasíldin hæstu einkunn hjá þeim. Það eru meðmæli sem mark er takandi á.

Jón Gunnar var spurður að því hver væri galdurinn á bak við framleiðsluna á síldinni. „Það er margt sem þarf að hafa í huga. Eitt það mikilvægasta er að fá góða síld til framleiðslunnar. Við veljum algjöra eðalsíld sem er nýveidd og eins fersk og unnt er að hugsa sér. Reyndar er öll síld sem við fáum til vinnslu í hæsta gæðaflokki en sú síld sem verkuð er sem jólasíld er einstaklega góð. Verkunin á jólasíldinni hefst um miðjan september. Þá er flakað og brytjað og síðan eru bitarnir settir í tunnur. Í tunnunum liggur hún í edikslegi í mánuð. Þá er hún sett í fötur og fer ýmislegt með í föturnar sem gerir bragðið einstakt. Uppskriftin að jólasíldinni okkar er leyndarmál en ótrúlega margir sem hafa bragðað hana segja að þetta sé besta síld í heimi. Það er afskaplega skemmtilegt verkefni að vinna að framleiðslu jólasíldarinnar og heilmikil stemmning í kringum það. Núna hefur þetta verið svolítið erfitt vegna þess að það hefur svo mikið verið að gera við hefðbundin störf í fiskiðjuverinu. Um þessar mundir veiðist íslenska sumargotssíldin og þá er framleiðsla á fullu hjá okkur. Það kom núna smáhlé og þá var tækifærið gripið og unnið í jólasíldinni,“ segir Jón Gunnar.

Hér skal ítrekað að jólasíldin er framleidd fyrir starfsmenn Síldarvinnslunnar og þá sem tengjast fyrirtækinu. Hosurnar, líknarfélag starfsmanna Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað, fær þó síld sem seld verður til styrktar sjúkrahúsinu.

Það ríkir ávallt góð stemmning þegar unnið er í jólasíldinni. Ljósm. Smári Geirsson