Vinna við framleiðslu á jólasíld Síldarvinnslunnar hófst í lok september. Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson

Í lok september hófst vinna við framleiðslu á hinni geysivinsælu jólasíld Síldarvinnslunnar. Þegar rætt er um jólasíldina kemur sérstakur svipur á menn, þeir verða afar spenntir og byrja að sleikja út um. Síldin hefur verið framleidd í áratugi og er farið eftir ströngustu reglum við framleiðsluna. Uppskriftin að síldinni er leyndarmál. Þeir sem lengst hafa stýrt framleiðslu jólasíldarinnar eru Haraldur Jörgensen og Jón Gunnar Sigurjónsson. Jón Gunnar hefur reyndar stýrt framleiðslunni í hátt í 40 ár og þó svo að hann hafi látið af störfum hjá Síldarvinnslunni kom hann og leiðbeindi nú þegar vinnan við framleiðsluna hófst að sögn Geirs Sigurpáls Hlöðverssonar, rekstrarstjóra fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar.

Það er margt sem hafa þarf í huga þegar kemur að framleiðslu jólasíldarinnar. Númer eitt er að fá gæðasíld til að vinna með. Síldin þarf að vera norsk – íslensk, stór og fersk, veidd skammt austur af landinu. Byrjað er á að flaka síldina og síðan eru flökin brytjuð niður í hæfilega bita. Bitarnir eru síðan settir í tunnur þar sem þeir liggja og marinerast í um mánaðartíma. Loks er síldin sett í fötur og ásamt henni fer ýmislegt með í föturnar til að fáist hið eina sanna bragð. Ótrúlega margir hafa kveðið upp þann dóm að jólasíldin frá Síldarvinnslunni sé besta síld í heimi.

Jólasíldin er framleidd fyrir starfsfólk Síldarvinnslunnar og þá sem tengjast fyrirtækinu. Hosurnar, líknarfélag starfsmanna Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað, fær þó síld í ákveðnu magni sem er seld til styrktar sjúkrahúsinu.

Það ríkir ávallt mikið fjör þegar jólasíldin er sett í föturnar og mun heimasíðan greina frá því þegar þar að kemur.

Síldarbitar tilbúnir í maríneringu. Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson