Barði NK að veiðum. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Barði NK landaði 1.280 tonnum af kolmunna á Seyðisfirði sl. föstudag og Börkur NK landaði 2.200 tonnum daginn eftir. Heimasíðan ræddi við Runólf Runólfsson, skipstjóra á Barða, og spurði fyrst hvernig veiðarnar hefðu gengið. „Við vorum fimm daga að veiðum og það var býsna rólegt framan af. Veitt var syðst í Rósagarðinum og það var töluverður dagamunur á aflanum. Þetta var býsna blettótt og við vorum ekkert sérstaklega heppnir í þessum túr. Það gekk til dæmis betur hjá Berki. Í túrnum var stærsta holið hjá okkur 300 tonn en hið minnsta 130 tonn. Það skiptir miklu máli að veiða kolmunnann þarna því þetta er innan íslenskrar lögsögu og því eiga menn að vera þolinmóðir þó aflinn sé ekki alltaf upp á það besta. Það þarf líka að hafa það í huga að oft hefur besta veiðin þarna verið í nóvembermánuði. Við munum halda áfram á kolmunnanum en það er spáð bölvaðri brælu á þriðjudagsnótt og við munum ekki fara út fyrr en eftir hana,“ segir Runólfur.