Bjarni Ólafsson AK. Ljósm. Húnbogi Sólon GunnþórssonBjarni Ólafsson AK. Ljósm. Húnbogi Sólon GunnþórssonSíðustu þrjá- fjóra dagana hefur verið kolmunnakropp í Rósagarðinum. Heimasíðan ræddi við Gísla Runólfsson skipstjóra á Bjarna Ólafssyni AK og var hann sæmilega sáttur. „Það hefur verið veiði síðustu dagana. Til dæmis voru skipin að fá 100-300 tonn í holi í gær. Við erum komnir með 1.000 tonn í þremur holum. Það er togað í um það bil sólarhring og híft á kvöldin. Nú eru sex skip hér á miðunum en það eru Börkur, Beitir, Hákon, Kap og Ísleifur auk okkar. Einhver skip eru byrjuð makrílveiðar og þá fækkar á kolmunnanum. Þau eru að veiða makríl norður undir Jan Mayen og eitthvað hefur fengist þar. Í dag er heldur dauft hjá okkur hvað veiðina varðar en þetta er svona á kolmunnanum; það er oft dagamunur á veiðunum,“ segir Gísli.
 
Hákon EA landaði um 800 tonnum af kolmunna í Neskaupstað í gær.