Beitir NK á kolmunnamiðunum. Ljósm. Helgi Freyr ÓlasonBeitir NK á kolmunnamiðunum.
Ljósm. Helgi Freyr Ólason
Kolmunnaskipin sem eru að veiðum í færeysku lögsögunni hafa lítið fengið síðustu dagana. Beitir NK og Börkur NK eru að leita norðan við Færeyjar og hefur lítið komið út úr því ennþá. Beitir er kominn með 1.700 tonn og Börkur um 1.500. Tómas Kárason skipstjóri á Beiti segir að veiðin hafi verið fín í upphafi veiðiferðarinnar en síðan hafi hún algerlega dottið niður. „Við stefnum núna í Rósagarðinn og ef ekkert finnst verður án efa fljótlega haldið heim á leið þar sem menn munu taka þátt í sjómannadagshátíðarhöldum í blíðunni. Auðvitað er sjálfsagt að nota tímann til að leita, en veiðin hefur nánast engin verið síðustu tvo dagana,“ segir Tómas.
 
Margrét EA kom í morgun til Seyðisfjarðar og mun landa þar um 1.700 tonnum og Bjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar í gærkvöldi þar sem hann landaði 1.800 tonnum. Gísli Runólfsson skipstjóri á Bjarna Ólafssyni segir að veiðiferðin hafi gengið vel hjá þeim. „Við vorum rúmlega tvo sólarhringa að fá í bátinn og aflinn fékkst í einungis fjórum holum. Þegar við héldum í land breyttist þetta og nú er bara ekkert að hafa og skipin sem eru á miðunum eru að leita. Nú erum við að þrífa skipið og gera það fínt fyrir sjómannadagshelgi. Hjá okkur er allt komið í ró,“ segir Gísli.