Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, segir að Íslensk erfðagreining og Heilbrigðisstofnun Austurlands eigi heiður skilið fyrir hvernig þau brugðust við bón fyrirtækisins um skimun áhafnanna. „Það voru 20 sjómenn af uppsjávarskipum frá okkur sem fóru í skimun á laugardaginn hjá þeim. Brugðist var mjög skjótt við beiðni okkar og var skimuninni komið við með skömmum fyrirvara. Við viljum senda Íslenskri erfðagreiningu og HSA okkar bestu þakkir fyrir. En þrátt fyrir skimunina er mikilvægt að sjómennirnir virði umgengisreglur um borð í skipunum, haldi fjarlægð á milli sín, vandi sig við handþvott og sótthreinsun og svo framvegis. Þó skimun leiði í ljós að menn séu ekki sýktir, geta þeir samt borið veiruna þannig að öllum reglum verður að fylgja í hvívetna. Það er reyndar ánægulegt að finna hvað starfsmenn fyrirtækisins eru tilbúnir að laga sig að þeim reglum sem settar hafa verið vegna Covid-19. Þessu fylgja áskoranir, ýmsar skerðingar og breytingar. Ég er afar þakklátur þeim samtakamætti sem starfsmenn sýna nú á þessum erfiðu tímum þar sem við erum öll staðráðin í að gera það sem við getum til að forðast veiruna,“ segir Gunnþór.