Börkur NK að leggjast að löndunarbryggju fiskimjölsverksmiðjunnar á Seyðisfirði með fullfermi af kolmunna. Ljósm. Ómar Bogason

Beitir NK kom til Neskaupstaðar síðdegis á mánudag með síðasta kolmunnafarm Síldarvinnsluskipa að sinni og var aflinn um 2.000 tonn. Síldarvinnslan á eftir um 18.000 tonn af kolmunnakvótanum og er stefnt að því að veiða hann í íslenskri lögsögu síðar.

Eftir að loðnuvertíðinni lauk seint í marsmánuði var farið að hyggja að kolmunnaveiðum í færeyskri lögsögu. Skipin héldu síðan til veiða eftir páskana og gengu þær strax vel á hinu svonefnda gráa svæði syðst í færeysku lögsögunni. Síðan færðu skipin sig norðar og áfram var hörkuveiði. Fyrstu farmarnir bárust til fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði um miðjan apríl og var nánast samfelld vinnsla fram í þessa viku.

Fiskimjölsverksmiðjan í Neskaupstað tók á móti um 34.100 tonnum af kolmunna á þessum tíma og verksmiðjan á Seyðisfirði á móti um 27.600 tonnum. Samtals barst því 61.700 tonn til verksmiðjanna. Kolmunninn hefur verið afar gott hráefni til mjölvinnslu en hins vegar fæst lítið lýsi úr honum á þessum árstíma. Auk Síldarvinnsluskipa hafa Vilhelm Þorsteinsson EA, Margrét EA og Hákon EA landað kolmunnaafla í verksmiðjurnar.

Skipstjórar kolmunnaskipanna hafa verið mjög ánægðir með gang kolmunnaveiðanna að undanförnu. Veiðarnar gengu vel nánast allan veiðitímann og veður var hagstætt til veiða. Síldarvinnsluskipin hafa borið að landi 35.551 tonn af kolmunna frá því eftir páska og hefur hvert skip aflað sem hér segir: Barði NK 8.438 tonn, Beitir NK 14.363 tonn og Börkur NK 12.750 tonn.

Kolmunnavinnslunni í fiskimjölsverksmiðjunni á Seyðisfirði lauk á mánudagskvöld og er gert ráð fyrir að vinnslu ljúki í Neskaupstað í nótt. Líkur eru á að grænlenska skipið Polar Ammassak muni landa kolmunna í Neskaupstað á næstu dögum.