Börkur NK að landa kolmunna í morgun. Ljósm. Smári GeirssonBörkur NK að landa kolmunna í morgun.
Ljósm. Smári Geirsson
Síldarvinnsluskipin Beitir og Börkur hafa verið að kolmunnaveiðum í íslenskri lögsögu austur af landinu síðustu daga. Beitir kom til hafnar í gærmorgun með 700 tonna afla og Börkur í nótt með um 540 tonn. Sturla Þórðarson, skipstjóri á Beiti, segir að sáralítið af kolmunna hafi verið að sjá. „Við tókum fjögur hol á Rauða torginu og austan við það og þetta var ósköp slakt,“ segir Sturla. 
 
Hálfdan Hálfdanarson, skipstjóri á Berki, tekur undir með Sturlu. „Það var ansi lítið að sjá þarna og aflinn er ekki mikill eftir sex daga. „Í fyrra komu ágætir dagar á þessum slóðum í júlímánuði en kolmunninn hagar sér með öðrum hætti í ár og virðist ekki þétta sig. Allavega hafa ekki komið góðir veiðidagar ennþá núna,“ segir Hálfdan.