Landað úr Vestmannaey VE og Bergey VE í gær. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson
Ísfisktogarar Bergs-Hugins, Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu báðir fullfermi í Eyjum í gærmorgun. Skipin héldu til veiða síðdegis á laugardag þannig að það fiskaðist vel. Heimasíðan ræddi stuttlega við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra á Vestmannaey og spurði hvar skipin hefðu verið að veiðum. „Við byrjuðum upp við Surtsey í þorski og síðan var haldið vestast á Selvogsbankann í ýsu. Það fiskaðist afar vel allan túrinn og fiskurinn sem fékkst var góður. Nú er komið að vertíðarlokum og markaðsaðstæður ráða því að hægt er á sókninni. Við förum líklega ekki út aftur fyrr en á laugardag. Vertíðin hefur einkennst af tvennu; brælum og þessu covidástandi. Bæði brælurnar og ástandið hafa orsakað það að skipin hafa ekki verið rekin á fullum afköstum. Það hefur aftur á móti gengið vel að veiða helstu tegundirnar. Ég held að lengsti túrinn okkar hafi verið þrír dagar. Tíðarfarið hefur verið heldur leiðinlegt en maður hefur séð það verra,“ segir Birgir Þór.