Vestmannaey VE kom til löndunar í Neskaupstað í morgun. Ljósm. Arnar Richardsson

Kvótaárið hjá Vestmannaey VE og Bergi VE byrjar vel að sögn Arnars Richardssonar, rekstrarstjóra Bergs – Hugins ehf og Bergs ehf. Bergur landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í gærkvöldi og Vestmannaey landar fullfermi í Neskaupstað í dag. „Það er akki annað hægt að segja en að kvótaárið fari býsna vel af stað. Skipin hafa landað fjórum sinnum hvort á tveimur fyrstu vikum kvótaársins og aflinn hefur verið býsna góður. Fyrri vikuna var mest veitt af þorski en ýsa og ufsi var mestur hluti aflans seinni vikuna. Skipin hafa landað í heimahöfn í Vestmannaeyjum og einnig í Neskaupstað og á Seyðisfirði í byrjun kvótaársins. Aflinn hefur farið til vinnslu í Vestmannaeyjum, í Grindavík, á Akureyri, á Dalvík og á Seyðisfirði. Síðan hefur lítill hluti aflans farið beint til útflutnings. Við reiknum með að skipin verði á svipuðu róli næstu vikurnar,“ segir Arnar.