LöndunBarði NK landar á Norðfirði í dag frystum afurðum að verðmæti um 105 milljónir.  Barði NK heldur aftur til veiða föstudaginn 26. febrúar kl. 19:00
Bjartur NK landar einnig í dag um 65 tonnum af fiski og er uppistaða aflans þorskur.

Börkur NK landaði í gær um 1.300 tonnum af loðnu og var aflinn skorinn til hrognavinnslu.  Börkur NK hélt aftur til veiða í morgun.
Bjarni Ólafsson AK er væntanlegur síðar í dag með fullfermi af loðnu sem væntanlega fer einnig til hrognavinnslu.

Einnig er verið að skipa út frystum afurðum úr frystigeymslu Síldarvinnslunnar.

Höfnin