Vegna þeirrar umfjöllunar sem átt hefur sér stað í fjölmiðlum að undanförnu um meint smáýsudráp síldarflotans í Breiðafirði, vill undirritaður koma eftirfarandi á framfæri.

Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað hefur tekið á móti langmestu af síld á vertíðinni, hún hefur öll verið veidd í Breiðafirði.  Nánast öll síldin hefur farið til manneldisvinnslu, þar er hún tekin yfir flokkara og bolfiskur skilinn frá, settur í kör og vigtaður samkvæmt reglum fiskistofu.  Eftirlitsaðilar fiskistofu hafa fylgst með flokkun og vigtun aflans.

Eins og sést á töflunni hér að neðan hefur verið landað 13.500 tonnum hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað af 36.000 tonna heildarafla sem gerir rúm 37% af veiðinni á vertíðinni.  Þar af hefur meðafli í ýsu verið rúm 3.800 kg.

Íslensk síld, landað í Neskaupstað á vertíðinni

 

Síld til vinnslu

Síld til bræðslu

Samtals síld

Ýsa

Þorskur

Ufsi

Samtals meðafli

Hlutfall meðafla

Börkur

7.706.000

13.000

7.719.000

3.703

1.211

74

4.988

0,06%

Háberg

4.692.000

394.000

5.086.000

155

1.107

 

1.262

0,02%

Bjarni Ólafsson

724.531

0

724.531

629

54

683

0,09%

13.122.531

407.000

13.529.531

3.858

2.947

128

6.933

0,05%

Eins og sést á framansögðu er orðrómur um stórfellt ýsudráp síldarflotans í Breiðafirði úr lausu lofti gripinn.  Fréttaflutningur af þessu tagi virðist eingöngu settur fram með það að markmiði að vega að orðstír sjómanna, starfsfólks og fyrirtækja sem byggja afkomu sína á viðkomandi veiðiskap.

Mér finnst starfsfólk Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og annarra fyrirtækja sem vinna við gjaldeyrissköpun úr síldinni ekki eiga skilið að sitja undir rangfærslum sem þessum.

Gunnþór Ingvason
Framkvæmdastjóri
Síldarvinnslunnar í Neskaupstað