Loðnufrysting í fiskiðjuveri SVN    Ljósm. Guðjón Helgi ÞorsteinssonLoðnufrysting hefur gengið vel í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar það sem af er vertíðinni.  Markaðir fyrir frysta loðnu eru sterkir um þessar mundir og verð há.  Um s.l. mánaðamót hófst frysting á svonefndu „Japansmixi“ og áfram er haldið að frysta á Austur-Evrópu.  Í höfninni er skip sem lestar 4.000 tonn af frystri loðnu enda er brýnt að losa frystigeymslurnar sem fyllast jafnóðum.

Frystiskipið Cool Aster lestar nú 4.000 tonn af loðnu til Úkraínu.   Ljósm. Þórhildur Eir