Norska loðnuskipið Ligrunn kom til Neskaupstaðar í hádeginu í dag með 180 tonn af loðnu. Aflinn fékkst í nótt norður af Grímsey. Þetta er fyrsta loðnan sem borist hefur til vinnslu í Neskaupstað á vertíðinni en hún verður fryst í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Heimasíðan ræddi við Jón Gunnar Sigurjónsson, yfirverkstjóra í fiskiðjuverinu, í morgun og sagði hann að starfsfólkið væri í startholunum og tilbúið að hefja framleiðslu. „Þetta er vissulega lítið magn en það er kærkomið því nú gefst okkur tækifæri til að prófa nýtt frystikerfi sem verið er að taka í notkun,“ sagði Jón Gunnar.
Áfram gengur vel að veiða og vinna loðnu hjá vinnsluskipunum Vilhelm Þorsteinssyni EA og Polar Amaroq og koma þau til löndunar í Neskaupstað á fjögurra til fimm daga fresti.