Loðnuveiðar með flotvörpu hófust norður af landinu síðdegis í gær. Veiðarnar skiluðu litlum árangri í gær og nótt og kom það mönnum á óvart. Skipin voru í ágætis lóði en líkur eru á að verulegur hluti þess sé áta. Þegar trollin eru tekin eru þau kafloðin af átu. Loðnan virðist vera dreifð og þess vegna skila holin litlu. Í morgun var Börkur NK búinn að hífa tvisvar og fá 60-70 tonn í hvoru holi eftir að hafa togað í 7-8 tíma. Bjarni Ólafsson AK var búinn að hífa einu sinni og fékk 90 tonn. Önnur skip voru að fá á bilinu 60-120 tonn, allt eftir því hve lengi var dregið. Að sögn skipstjórnarmanna virðist ekki vera neitt göngumynstur á þessari loðnu. Hún er búin að vera þarna nokkuð kyrr um skeið en hefur þó sigið örlítið í austur. Bátarnir hafa ekki orðið varir við alvöru loðnugöngu ennþá.

Loðnan sem veiðst hefur virðist vera nokkuð misjöfn að stærð. Í fyrra holi Barkar voru 39 stykki í kílói en í holinu hjá Bjarna Ólafssyni voru 47 stykki í kílóinu.

Skipstjórnarmennirnir, sem heimasíðan ræddi við í morgun, voru bjartsýnir á loðnuvertíðina þrátt fyrir þessa rólegu byrjun. Bent var á að loðnan hefði oft verið heldur erfið viðureignar á þessum árstíma en síðan hafi ræst úr. Einnig var bent á að enn hefðu engar veiðar farið fram í dagsbirtu og mögulegt væri að þær verði árangursríkari.