Brátt lýkur loðnuvertíð. Ljósm. Sigurjón Mikael Jónuson

Enn er góð loðnuveiði og eru Síldarvinnsluskipin að klára kvóta fyrirtækisins. Börkur NK er á leiðinni til Neskaupstaðar með fullfermi og er þetta hans síðasti túr á vertíðinni. Barði NK er á miðunum og Bjarni Ólafsson AK og Beitir NK eru á leiðinni á miðin. Munu þessi þrjú skip klára Síldarvinnslukvótann.

Lokið var við að kreista hrogn úr farmi Bjarna Ólafssonar AK í nótt í Neskaupstað og nú er verið að kreista úr farmi Hákons EA. Polar Amaroq er á leiðinni með fullfermi til Neskaupstaðar og verða hrogn unnin úr hans farmi. Polar Ammassak er að landa fullfermi á Seyðisfirði og Vilhelm Þorsteinsson er á leiðinni þangað, einnig með fullfermi.