Það líður ekki langur tími á milli landana hjá Vestmannaey VE og Bergi VE. Ljósm. Björn Steinbekk

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE hafa fiskað vel að undanförnu og bæði skip lönduðu fullfermi í Eyjum á miðvikudag. Heimasíðan hafði samband við Egil Guðna Guðnason skipstjóra á Vestmannaey og innti hann frétta. “Það er góð vertíðarveiði þessa dagana. Það gengur vel að fá í skipin og það líður ekki langur tími á milli landana. Bergur fór til dæmis út á miðvikudagskvöld og hann mun landa fullfermi í dag. Allt byggist þetta á góðum áhöfnum og við höfum svo sannarlega góða kalla um borð. Við á Vestmannaey erum búnir að fara þrjá túra á sex dögum og alltaf landað fullfermi. Aflinn á þessum sex dögum er vel á þriðja hundrað tonn. Ég hugsa að aflinn sé hátt í 50 tonn á veiðidag. Í síðasta túr vorum við í Háfadýpinu og á Selvogsbanka og allt gekk eins og í sögu. Lögð er áhersla á að fiska ýsu og ufsa en það kemur alltaf einhver þorskur með. Það hefur gengið betur að veiða ufsa núna en síðustu ár. Í ufsanum er mun betri veiði á nóttunni en á daginn en þorskurinn veiðist hins vegar betur á daginn,” segir Egill Guðni.