Landað úr Gullver NS sl. föstudag. Ljósm. Ómar Bogason

Sl. föstudag kom ísfisktogarinn Gullver NS til löndunar á Seyðisfirði. Aflinn var 103 tonn og uppistaða hans var þorskur og karfi. Skipið hélt aftur til veiða um hádegisbil í gær og þegar heimasíðan ræddi við Rúnar L. Gunnarsson skipstjóra í morgun var það að veiðum í Hvalbakshallinu. Rúnar var spurður um síðasta túr og hvernig maímánuður hefði gengið hjá þeim Gullversmönnum. „Í síðasta túr vorum við að veiðum í Hvalbakshallinu og Lónsdýpinu og það gekk þokkalega. Maí var bara ágætur. Aflinn í mánuðinum var nokkuð góður og þá fékkst meðal annars dálítill ufsi sem telst til tíðinda á seinni tímum. Veður var líka að mestu gott í maímánuði,“ segir Rúnar.