Barði NK kom í morgun til Neskaupstaðar með 1.100 tonn af makríl og síld. Ljósm. Smári Geirsson

Barði NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 1.100 tonn af makríl og síld. Um er að ræða eigin afla skipsins og að auki afla þeirra fjögurra skipa sem hann er í veiðisamstarfi með. Þessi afli fékkst í íslensku lögsögunni og er það fagnaðarefni að makríll skuli veiðast þar. Þorkell Pétursson, skipstjóri á Barða, segist vongóður um framhald makrílveiðanna. „Í aflanum sem við vorum að koma með er of hátt hlutfall af íslenskri síld. Makríllinn mun fara í manneldisvinnslu en síldin fer til mjöl- og lýsisvinnslu. Við vorum áður úti í Smugu en þar var mjög dauft yfir veiðunum. Skipin færðu sig inn í íslensku lögsöguna og þá var byrjað að toga í kantinum út af Breiðdalsgrunni, en þar reyndist mikil síld vera í aflanum. Þá færðu skipin sig vestar. Byrjað var að toga við Lónsdýpið og endað við Hornafjarðardýpið og þá var makrílhlutfallið í aflanum mun betra. Það er erfitt að greina hvort um er að ræða makríl eða síld og þessar tegundir eru blandaðar á þessum slóðum. Nú eru fréttir af fiski að ganga úr færeysku lögsögunni og inn í þá íslensku og þar hlýtur makríll að vera á ferðinni. Skipin eru þegar komin þangað. Makríllinn sem við erum með núna er hinn fallegasti fiskur, en hann er um 500 grömm að stærð. Ég held að menn séu bara bjartsýnir á framhaldið og það er óhemju jákvætt að makríllinn veiðist í íslenskri lögsögu. Hann virðist vera heldur seinna á ferðinni en stundum áður en ég held að þetta komi allt saman. Það verður líklega klárað að landa í nótt og þá verður haldið rakleiðis til veiða á ný,“ segir Þorkell.