
Í fiskiðjuverinu er unnið á vöktum og eru vaktirnar þrjár. Um 25 starfsmenn eru á hverri vakt auk verkstjóra og iðnaðarmanna. Gengnar eru 12 tíma vaktir og í fullum vaktamánuði þegar hráefnisöflun er stöðug vinnur hver starfsmaður á um 20 vöktum. Hér er um að ræða mikla vinnu en tekjurnar eru góðar. Reiknað er með að makrílvertíð standi fram undir miðjan septembermánuð en þá er gert ráð fyrir að veiðar og vinnsla hefjist á norsk- íslenskri síld þannig að vaktavinnu í fiskiðjuverinu ætti ekki að ljúka fyrr en í októberlok.
Hákon Ernuson, starfsmannastjóri Síldarvinnslunnar, segir að ágætlega hafi gengið að ráða starfsfólk fyrir vertíðina sem hófst í byrjun júlí. Nú þurfi hins vegar að ráða fólk til starfa frá miðjum ágúst, þegar skólafólk hverfur af vettvangi, en þá bregði svo við að fólk sýni störfunum lítinn áhuga. Sárafáar umsóknir hafi borist og hafi hann verulegar áhyggjur af stöðu mála. „Ég hélt að það yrði ekki erfitt að manna þessi störf í því atvinnuástandi sem ríkir á landinu, en einhverra hluta vegna virðast þau ekki vera áhugaverð,“ segir Hákon.