Bergey VE kom til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun með fullfermi. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson

Ísfisktogarinn Bergey VE lagðist að bryggju í Vestmannaeyjum í morgun með fullfermi og var uppistaða aflans ufsi. Jón Valgeirsson skipstjóri segir að túrinn hafi einkennst af brælu. „Það gekk vel að veiða ef tekið er tillit til þess að við vorum á sífelldum flótta undan veðri. Við byrjuðum í Sláturhúsinu og síðan færðum við okkur vestur á Öræfagrunn, Kötlugrunn og loks í Reynisdýpið. Það var ekkert hægt að kvarta undan aflanum en veðrið hefði mátt vera miklu betra. Aflanum verður landað í dag og veðurútlit mun síðan hafa mikið að segja um framhaldið,“ segir Jón. Systurskipið Vestmannaey VE hefur verið að karfaveiðum fyrir sunnan og vestan Eyjar. Afli hefur verið ágætur á daginn en lélegur yfir nóttina. Gert er ráð fyrir að skipið fylli í kvöld og landi í Eyjum.