Skip Bergs-Hugins hafa fiskað vel það sem af er ári. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson

 Útgerð skipa Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum hefur gengið vel það sem af er ári. Fyrstu fjóra mánuði ársins fiskaði Vestmannaey VE  1531 tonn og Bergey VE 1341 tonn. Á sama tíma í fyrra var afli Vestmannaeyjar 1411 tonn og Bergeyjar 1224 tonn. Verðmæti afla skipanna tveggja fyrstu fjóra mánuði ársins hefur einnig aukist umtalsvert á milli ára. Verðmæti afla Vestmannaeyjar er 471 milljón í ár en var 400 milljónir í fyrra og verðmæti afla Bergeyjar 412 milljónir miðað við 342 milljónir í fyrra. 

Afli skipanna beggja hefur að miklu leyti verið sendur á erlenda markaði, einkum í Englandi og Þýskalandi og þar hefur fengist hátt verð fyrir fisk að undanförnu. Almennt hafa þessir markaðir verið að gefa tæplega 30 kr. hærra meðalverð en á sama tíma í fyrra og auk þess hefur gengið haldist stöðugt og skýrir það hið aukna aflaverðmæti skipa Bergs-Hugins. Hluti afla skipanna það sem af er ári hefur farið til vinnslu innanlands, bæði á Seyðisfirði og eins í Nöf í Vestmannaeyjum. Magnús Kristinsson, framkvæmdastjóri Bergs-Hugins, er mjög sáttur við rekstur fyrirtækisins það sem af er árinu: „Reksturinn hefur gengið afar vel, bæði skipin hafa fiskað með ágætum og gott verð hefur fengist fyrir aflann. Starfsemin er í föstum skorðum og samstarfið við Síldarvinnsluna hefur verið eins gott og á verður kosið allt frá því að Síldarvinnslan eignaðist Berg-Hugin. Það hefur verið einkar ánægjulegt að taka þátt í því samstarfi,“ sagði Magnús að lokum.