Frá aðalfundi

Gunnþór B. Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar fer yfir rekstur og stöðu fyrirtækisins á aðalfundinum sl. miðvikudag. Ljósm: Hákon Ernuson

                Á aðalfundi Síldarvinnslunnar sl. miðvikudag var ítarlega farið yfir rekstur fyrirtækisins og stöðu. Þá var þróun starfseminnar síðustu ár rakin og mjög áhugaverðar upplýsingar birtar. Afli skipa fyrirtækisins á árinu 2017 var mun meiri en árið áður en skýrt kom fram að verðmætin eru mun minni. Þegar þróun bolfiskveiða hjá skipum félagsins er skoðuð kemur fram að veiðarnar fóru vaxandi ár frá ári á árunum 2010- 2015 enda festi fyrirtækið kaup á bolfiskkvóta og fyrirtækjum sem réðu yfir slíkum kvóta á  á því tímabili. Á árinu 2015 var hápunkti náð hvað viðkemur verðmætum. Þá veiddu bolfiskskip Síldarvinnslunnar um 20.000 tonn og verðmæti aflans voru tæplega 6 milljarðar króna. Síðan hafa verðmætin farið minnkandi með afgerandi hætti og á síðasta ári námu þau einungis rúmlega 4 milljörðum þrátt fyrir að afli væri svipaður og á árinu 2015. Kemur þetta skýrt fram á meðfylgjandi skýringarmynd.

Veiði bolfiskskipa

                 Hvað viðkemur uppsjávarveiðunum má segja að þróunin sé svipuð hvað aflaverðmæti varðar en veiðarnar einkennast þar af meiri sveiflum. Verðmætin fóru vaxandi á árunum 2010-2013 og á árinu 2013 náðu þau 5,3 milljörðum króna. Verðmætin féllu niður í 4 milljarða árið 2014 en hækkuðu á ný upp í rúmlega 4,5 milljarða árið 2015. Eftir það hefur verðmætakúrfan sigið niður á við og á síðasta ári námu verðmætin einungis 3,7 milljörðum þrátt fyrir að aflinn væri jafn mikill og í bestu árum eins og fram kemur á meðfylgjandi skýringarmynd.

Veiði uppsjávarskipa

                Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja og sjómanna hefur breyst í samræmi við það sem rakið hefur verið hér að framan og eins hefur þessi þróun haft mikil áhrif á afkomu þeirra sveitarfélaga sem byggja á sjávarútvegi.