Nk. þriðjudag, 20. desember, mun Síldarvinnslan efna til minningarstundar á minningareitnum á grunni gömlu fiskimjölsverksmiðjunnar í Neskaupstað. 20. desember er hinn örlagaríki dagur þegar snjóflóð féllu árið 1974 og tólf einstaklingar týndu lífi, þar á meðal sjö starfsmenn Síldarvinnslunnar.
Alls hafa tólf einstaklingar látið lífið í störfum fyrir Síldarvinnsluna. Auk þeirra sjö sem fórust í snjóflóðunum hafa þrír farist á sjó og tveir við störf í landi.
Minningarstundin hefst kl. 17.00 og er dagskrá hennar svofelld:
- Fólk hittist við minningareitinn og kveikt er á kertum
- Séra Benjamín Hrafn Böðvarsson og séra Bryndís Böðvarsdóttir flytja stutta hugvekju
- Guðmundur Rafnkell Gíslason og Jón Hilmar Kárason flytja tónlist
Boðið verður upp á heitt kakó.
Að lokinni minningastundinni klukkan 18.00 verður boðið upp á síldarsmakk á Hótel Hildibrand í boði Síldarvinnslunnar. Jón Gunnar Sigurjónsson mun stýra smakkinu.