Beitir NK kemur til löndunar á Seyðisfirði. Ljósm. Ómar Bogason

Beitir NK kom til Seyðisfjarðar í gær með 2.950 tonn af kolmunna. Heimasíðan ræddi við Tómas Kárason skipstjóra og spurði fyrst hvernig veiðin hefði gengið. „Þetta var í sannleika sagt rosaleg veiði, algjört mok. Við fengum aflann á gráa svæðinu suðvestur af Færeyjum og það var aldrei dregið nema í 8 – 12 tíma. Þetta voru sex hol. Við fengum tvö 600 tonna hol, tvö 500 tonna, eitt var 390 tonn og eitt 360. Það var mikið að sjá af fiski á stóru svæði og þetta er hinn fallegasti fiskur, ábyggilega gott hráefni fyrir verksmiðjuna. Þar með er kolmunnaævintýrinu lokið að sinni en við gerum allt eins ráð fyrir að halda til kolmunnaveiða á ný eftir áramót. Svo bíða auðvitað allir spenntir eftir niðurstöðu frekari loðnuleitar,“ segir Tómas.

Síðustu dagana hafa borist til fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði yfir 7.000 tonn af kolmunna. Vilhelm Þorsteinsson EA kom fyrstur með um 2.500 tonn, síðan kom Barði NK með rúmlega 2.100 tonn og nú Beitir með 2.950 tonn.