Mokveiði var hjá okkar skipum í gær og fylltu allir, síðan
kaldaði eithvað upp með kvöldinu.  Búin að vera bræla í nótt og það er stormur á míðunum núna.

Erika landaði á Seyðis í gær og er að koma á miðin. Bjarni Ólafsson AK kom til Helguvíkur í morgun með fullfermi og er
að landa.  Vilhelm EA fyllti og er að landa á Seyðisfirði

Börkur NK kom í Helguvík um hádegi.  Birtingur NK kom til Neskaupstaðar í gærkvöldi með fullfermi og er hluti aflans frystur  Beitir NK fyllti í gær og er að landa í bræðsluna í Neskaupstað
og landar í frystingu á eftir Birtingi.

Hákon og Fagraberg eru að koma miðin.

Börkur NK og Bjarni Ólafsson AK landa í Helguvík