Bergey VE. Ljósm. Guðmundur AlfreðssonBergey VE. Ljósm. Guðmundur AlfreðssonVeiðin hjá Vestmannaey VE og Bergey VE hefur verið góð það sem af er mánuði. Skipin hafa fengið yfir 700 tonn en þau hafa lagt áherslu á að fiska annað en þorsk. Þau hafa veitt löngu, lýsu, steinbít og kola, en nú hafa þau hafið ýsuveiðar. Slegið var á þráðinn til Jóns Valgeirssonar skipstjóra á Bergey í morgun og spurt hvernig gengi að forðast þorskinn. „Það er bara erfitt. Það er svo mikið af þorski út um allt að hann truflar verulega þegar veiða á aðrar tegundir, en það þarf að sjálfsögðu að hugsa um fleira en þorsk. Við erum núna innarlega á Papagrunni að reyna við ýsu. Veiðin hefur gengið svona bærilega, en við komum ekki í neina ýsu fyrr en við vorum komnir austureftir. Áður lögðum við áherslu á steinbít og kola og þá var mest verið við Ingólfshöfðann. Lýsu höfum við fengið í fótreipi í Háfadýpinu, en mér finnst vera heldur minna af lýsu en verið hefur síðustu árin“, segir Jón.