Bergey VE að veiðum. Ljósm. Egill Guðni Guðnason

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði í heimahöfn sl. fimmtudagsmorgun eftir stuttan túr. Áður hafði skipið landað á þriðjudag. Á föstudagskvöld var haldið til veiða á ný og þá var farið austur fyrir land.

Bergey VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í gær en aflinn var blandaður.Heimasíðan ræddi stuttlega við Jón Valgeirsson skipstjóra og spurði fyrst hvar veitt hefði verið. „Við vorum á Reynisdýpinu og á Víkinni. Þetta gekk bara vel. Það var farið út strax eftir löndun og nú erum við á fyrsta holi á Öræfagrunni. Hann spáir bölvaðri brælu hér á morgun og því er ekki ólíklegt að við förum austar. Einhverjar sagnir eru um að afli sé heldur að glæðast þar,“ segir Jón.