Bergey var smíðuð í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi og er eitt af sjö systurskipum sem skipasmíðastöðin smíðaði fyrir íslensk fyrirtæki. Eitt þessara skipa er Vestmannaey VE sem kom nýtt til landsins í júlímánuði sl. Skipin eru hin glæsilegustu og afar vel búin, en um er að ræða togskip sem eru 28,9 m að lengd og 12 m að breidd. Stærð þeirra er 611 brúttótonn. Eru skipin búin tveimur aðalvélum og tveimur skrúfum.
Bergey mun ekki staldra lengi við í Eyjum. Veiðarfæri verða tekin um borð og er gert ráð fyrir að haldið verði til veiða á morgun. Jón Valgeirsson skipstjóri segir að sér lítist mjög vel á skipið. „Það verður gaman að hefja veiðar á þessu nýja skipi. Á leiðinni frá Akureyri fengum við aðeins brælu úti fyrir Norðurlandinu og það lét ágætlega. Það eru öðruvísi hreyfingar á þessu skipi en á gömlu Bergey. Það er flott að hefja veiðar á nýju skipi á laugardegi: Laugardagur til lukku,“ sagði Jón glaður í bragði.