Hin nýja Vestmannaey VE í prufusiglingu. Ljósm. VardHin nýja Vestmannaey VE í prufusiglingu. Ljósm. VardHin nýja Vestmannaey, sem er í smíðum hjá skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi, fór í prufusiglingu hinn 27. júní sl.. Hinn 5. júlí fóru síðan fram veiðarfæraprófanir en þá var allur búnaður sem tengist veiðarfærum um borð í skipinu prófaður. Guðmundur Alfreðsson, útgerðarstjóri Bergs-Hugins, er í Noregi og segir að siglingin og veiðarfæraprófanirnar hafi gengið vel í alla staði og ríki mikil ánægja með skipið.
 
Gert er ráð fyrir að Vestmannaey verði afhent Bergi-Hugin, dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar, síðar í þessari viku.
 
Systurskip Vestmannaeyjar, Bergey, er einnig í smíðum hjá Vard í Aukra og er ráðgert að það verði sjósett í ágústmánuði næstkomandi. Skipin eru tæplega 29 metrar að lengd og 12 metra breið og há.
 
Prufusiglingin gekk vel í alla staði. Ljósm. VardPrufusiglingin gekk vel í alla staði. Ljósm. Vard