Hver skrautlegi krakkahópurinn á fætur öðrum kom í heimsókn á skrifstofur Síldarvinnslunnar í dag. Krakkarnir voru klæddir hinum skrautlegustu búniningum og sungu eins og englar. Í þakklætisskyni þáðu þau harðfiskpoka að gjöf. Það er ávallt fagnaðarefni að fá öskudagsheimsóknir á skrifstofuna og meðfylgjandi eru myndir af nokkrum hópanna.