Ein af vindum skipsins hífð um borð. Ljósm. Jóhann Pétur Gíslason

Nýi Börkur liggur í Skagen í Danmörku þar sem unnið er af krafti um borð í skipinu. Um 120 starfsmenn Karstensens Skibsværft eru þar að störfum og sinna ýmsum verkefnum. Þeir Karl Jóhann Birgisson og Jóhann Pétur Gíslason vélstjóri dvelja í Skagen og fylgjast með öllum framkvæmdum fyrir hönd Síldarvinnslunnar. Heimasíðan ræddi stuttlega við Karl Jóhann. „Hér gengur allt mjög vel. Það er unnið samkvæmt áætlun og hún virðist standast ágætlega. Það er verið að vinna allsstaðar í skipinu; til dæmis er byrjað er að klæða veggi, það er unnið í pípulögnum, verið að koma öllum vindum fyrir og eins er unnið í rafkerfinu. Mörg þessara verka eru umfangsmikil og má nefna hvað rafkerfið varðar að lagðir veða 90 km af köplum. Það sem einkennir störfin hér er mjög gott skipulag og mikil fagmennska. Þá er áberandi að hér eru notuð gæðaefni. Það fer vel um okkur Jóhann Pétur hérna og ekki skemmir fyrir að veðrið hefur verið gott. Við erum búnir að kaupa okkur hjól og hjólum í vinnuna og um bæinn. Við getum ekki kvartað yfir neinu,“ segir Karl Jóhann.

Nú er unnið í Berki NK á athafnasvæði Karstensens skipasmíðastöðvarinnar í Skagen. Einnig er unnið í systurskipinu Vilhelm Þorsteinssyni EA sem liggur fyrir aftan Börk NK. Ljósm. Karl Jóhann Birgisson