Síldarvinnslan hf. og Hafrannsóknarstofnun standa fyrir opnum fundi um rannsóknir á uppsjávarfiskum í Egilsbúð, Neskaupstað í dag kl. 14:00.

Á fundinum fjallar Þorsteinn Sigurðsson, forstöðumaður Nytjastofnasviðs Hafrannsóknarstofnunarinnar, um ástand helstu uppsjávarfiskistofna við Ísland.  Gert verður grein fyrir mati á ástandi stofnanna, á veiðum á þeim og breytingum á útbreiðslu þeirra undanfarin ár.  Jafnframt verður gert grein fyrir rannsóknum á þeirri alvarlegu sýkingu sem upp hefur komið í íslensku sumargotssíldinni.