Erika og Polar Amaroq sigla inn Norðfjörð.  Ljósm. Þórhildur Eir Sigurgeirsdóttir

Í blíðviðrinu í gær, um kl. 16, sigldi hið nýja skip East Greenland Codfish AS inn Norðfjörð og lagðist síðan að bryggju.  Eins og fram hefur komið hefur skipið  fengið nafnið Polar Amaroq (Heimskauta-Úlfur).  Eldra skip hins grænlenska félags, Erika, hafði siglt til móts við nýja skipið og fylgdi því síðan inn Norðfjörðinn.

Geir Zoëga skipstjóri á Polar Amaroq segir að siglingin frá Noregi til Norðfjarðar hafi gengið vel og honum og áhöfninni lítist svo sannarlega vel á skipið.  „Við hlökkum til að takast á við krefjandi verkefni á þessu nýja og glæsilega skipi.  Um leið kveðjum við Eriku með hlýjum hug en hún mun nú halda á vit nýrra ævintýra við strendur Afríku“.

 

Geir var fastráðinn skipstjóri á Eriku síðustu fjögur árin en hann segir að kaupin á nýja skipinu sé einhver besta afmælisgjöf sem hann hefur fengið um ævina, en Geir verður þrítugur á næstunni.

Geir Zoëga skipstjóri á Polar Amaroq tekur við hamingjuóskum frá Freysteini Bjarnasyni framkæmdastjóra Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað.  Ljósm. Anna Margrét Sigurðardóttir